Upplýsingar um seljanda:

Zarkoperfume.is er rekið af Þórborgu ehf. kt. 610504-2130 VSK-númer 83721, Nýbýlavegi 28, 200 Kópavogi.

Verð

Frí heimsending þegar verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira.
Við áskiljum okkur fullan rétt vegna fyrirvaralausra verðbreytinga svo og vegna innsláttarvillna á netsíðu okkar. Öll verð eru með 24% virðisaukaskatti og öllum auka kostnaði.

Greiðsla

Kaupandi getur innt greiðslu af hendi með kreditkorti eða debetkorti. Kortafærslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Borgunar.

Afhending

Pantanir eru sendar með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Zarkoperfume.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Zarkoperume.is til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Hægt er að velja um að sækja vörur til okkar í Þórborgu á Nýbýlavegi 28, 200 Kópavogi alla virka daga frá 9-14.

Gölluð vara

Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum sé þess krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Vöruskil

Hægt er að skila vöru innan 14 daga frá pöntun og fá endurgreitt að fullu. Kaupandi getur afturkallað pöntun sér að kostnaðarlausu ef tafir verða á afgreiðslu með því að senda tölvupóst á netfangið: thorborg@thorborg.is eða hringja í síma 511-1381. Ef vöru er skilað verður hún að vera ónotuð og í upphaflegri pakkningu. Vörum skal skilað á Þórborgu, Nýbýlavegi 28, 200 Kópavogi.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Lög um varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.